Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

ert u strákur eða stelpa eða hommi eða lessa

High five... Very nice!!!

12. apríl 2007 klukkan 23:03

Jæja víst að enginn nennir að blogga um páskana þá er bezt að ég geri það bara.. Við drengirnir vorum búnir að plana að fara norður á strandir í jeppaleiðangur á Drangajökul. En nei það fór allt í fokk og fengum við þær fréttir að það væri bara drullu færi og leiðindi, þannig að hætt var við jeppaleiðangurinn. Ég lét þetta samt ekki á mig fá og var harður á því að fara norður, því að þetta er hinn bezti staður til að dvelja á og sé ég ekki eftir því að hafa farið.. Ég og Andri G fórum saman á yaris befreið sem að Andri fékk að láni hjá foreldrum. Við lögðum snemma af stað úr Sunny Kef og þá búnir að verzla mat og smá mjöður :D Þannig að við rúlluðum bara beinustu leið norður með smá stopp í Brú þar sem að við brögðuðum á pítu með einhverju fjallagrasi sem að hefur væntalega verið ræktað í fjalshlíðinni fyrir ofan. Andri, kellingin sem hann er skóf allt grasið af sinni pítu en ég lét það ekkert á mig fá og át þetta bara með beztu lyst, eins og flestir vita þá ét ég nánast allt sem kemur nálægt mínum kjafti. En nóg með það, við héldum á vit ævintýrana á ströndunum og fórum við beint í mat í Odda í Bjarnafirðinum, þar sem að við fengum þetta líka þetta gómsæta kjöt. Svo var bara farið í að drekka mjöður og horft á Borat, þá fengu sumir á heilann þessa frægu setnigu hjá Borat, High five.. Very nice og var hún sko ekkert spöruð þessa helgi. Seinna um kveldið var farið í laugina að laugarhóli og drukkið meira mjöður og látið öllum illum látum.

Á föstudeginum var vaknað snemma og farið beinustu leið út í fjárhús að gefa kindunum :D bara gaman það, svo var fengið sér súpu og meðlæti í Odda. Eftir súpuna var farið aftur út í fjárhúsin og mokað skít, því að þessar blessuðu kindur eru allar fullar af skít. Voru vaskir menn af störfum þ.e.a.s. Arnþór, Steinar, Sölvi, Golli, Andri. En auðvitað þurftum við að hafa eitthvað að drekka með okkur og tókum við kassa af mjöðri með í för. Það var bullað nóg og vildi einhver að stytta nafnið mitt frá Jón Ingibjörn í Nonni IngiBjössi, en ég var kallaður það sem eftir var ferðar.  En nóg um skítinn, um kvöldið lá leiðin á Café Riis sem að er staðsett á Hólmavík. Þar var drukkið og dansað vilta dansa eitthvað fram á nótt, man ekki alveg hvenær það endaði, man samt að löggan skutlaði okkur.



Agalega fínir í skítagallanum..

 
En á laugardeginum vöknuðum við Andri hjá Berglindi vinkonu okkar um morguninn, lá Andra svo á að komast heim til Golla að hann var varla búinn að vakna þá var hann farinn út. En ég þessi rólegi gaur var bara í chillinu þarna, spilaði Guitar Hero með Guðbrandi bróður Berglindar. Svo var maður bara kallaður í mat og ekki slæ ég hendinni á móti fríum mat. Var þá afi Berglindar að snæða þegar að ég settist við matarborðið, fékk ég líka ekkert smá ill augu og hann sagði ekkert, þannig að ég braut ísinn og bauð honum góðann daginn :P hehe Svo var haldið inn á Hólmavík í Vínbúðina til þessa að bæta í kassann til þess að getað mokað meiri skít, sem og við gerðum seinna um daginn.. Laugardagskveldið, þá var hörku partý hjá Golla frænda og spiluðum við þar drykkjuspil sem vakti mikla kátinu hjá liðinu. Svo var haldið á ball inn á Hólmavík, nánar til tekið í Bragganum, þar lék hljómsveitin Bermuda fyrir dansi og var það alveg hreint hörku stuð, dansaðir viltir dansar aftur.

Sunnudagurinn var alveg hreint magnaður, því að þá vaknaði ég við hliðina á Hófý og var búinn að liggja það eins og skata, og viti menn þá var ég kallaður í páskamat fram í stofu, þar beið fjölskylda hennar spennt eftir því að ég léti sjá mig, og buðu uppá svínakjöt og lambahrygg. Mætti ég eins og illa skreytt jólatré á hlýrabolnum og hárið eins og loftnet upp í loftið, það er ekki á hverjum degi sem að maður fær svona góðan morgunmat og var ég mjög sáttur með hann. Eftir matinn var Hófý svo væn að skutla mér heim til Golla frænda á Drangsnes, þar var strax opnaður bjór og byrjað að leita af páskaegginu sem að ég og Andri keyptum. Vorum við í einn og hálfan tíma að finna það eftir endalausar vísbendingar, eftir að við fundum eggið þá var það eina sem að við gerðum við það var að taka fuglinn af egginu og lögðum það svo á borðið. Einnig var farið í Odda og leitað af eggjum, þar sem að þau voru dreifð úti, gekk það svona ágætlega. Eftir eggjatýnsluna fór Golli að sigla sleðanum sínum á ánni fyrir neðan Odda. Svo um kveldið var spilað Stjórinn, drukkið mjöður og rekið við af öllu kjötinu sem að við höfðum hámað í okkur. Farið var aftur í sund á Laugarhóli og komu þar rugludallar frá Hólmavík og létu öllum illum látum.


Golli að taka af stað...

En mándudagurinn var rólegur og við vorum ekkert að æsa okkur að leggja af stað heim. Fengum skonsur rétt fyrir brottför hjá Helgu móður hans Golla og var fínt að éta smá áður en haldið var suður. Yarisinn var alveg hreint stappaður á leiðinni heim, Berglind og Magnea lögðu líf sitt í hættu við það að koma með okkur á yaris befreið suður. Ég fékk þann heiður að aka áleiðis suður, gekk það alveg ekkert smá hægt en slysalaust, spóluðum upp ennishálsinn því að þar var byrjað að snjóa.

Þessi ferð var alveg hreint geggjuð í alla staði, bezta við hana að við sváfum aldrei á þeim stað sem að við áttum að sofa á :p  En jæja er farinn að setja hendur mínar í gifs vegna mikilla takkapikkinga. Hehe

               Nonni IngiBjössi kveður að sinni... High five.. Very nice!!

Myndbandið af Golla sigla á ánni : http://www.youtube.com/watch?v=_s6ulBhMCFA

Gráa kattar crewið
hahaha æii þetta var sjjeeggjuð helgi!!:) vááá hvað ég hló: var þá afi berglindar með illt augnaráð og ég ákvað að brjóta ísinn! bwahaha =D
en já hmm þú gleymdir að segja frá ýmsu s.s hverja þú varst að skiptast á munnslefi við OG að páskaeggið var á milli ykkar heillengi þegar þið voruð að leita! haha krútt:)
12. apríl 2007 klukkan 23:16
djöful hefði ég vilja vera staddur á svæðinu !!
13. apríl 2007 klukkan 18:08
Golli
 
hehe ja þetta var sjitt stuð helgi.. margar sögur sem komu þess hegi.. eins og með polska og löggunna bwahaha..! snilldar helgi ..:D.. þurfum að endurtaka þetta again..!
14. apríl 2007 klukkan 00:18
Berglind, þú þarft alltaf að vera svo heimsk í kjaftinum :P hehe
Bjene þú áttir að mæta á svæðið marr :D:D
Golli já við eigum pottþétt eftir að endurtaka þetta :D:D
14. apríl 2007 klukkan 02:42
feita fjörið
 
Það hefur verið stemming! Éta gras og moka skít agalega er ég svekktur að missa af þessu.
En hvað helvíti hefuru verið sexy þessa helgi aldrei sama gellan!!!!! Eru þær með svona lágam stamdard þarna í kringum Hólmó? hahahahahaha
14. apríl 2007 klukkan 23:40
Jújú mikið rétt! Það má varla koma nýtt kjöt því þá erum við stokknar á það ! =)
En John! hahaha hvað meinaru heimsk i kjaftinum? ég held þú sért að meina orðheppin ;)
14. apríl 2007 klukkan 23:56
Hehe nei nei :D
15. apríl 2007 klukkan 14:42
ég þarf að kikja!!!!!!!
15. apríl 2007 klukkan 19:46
Það væri tilvalið að kíkja norður á Bryggjuhátið með tjaldvagnanna :D
15. apríl 2007 klukkan 20:50
Bryggjuhátíð jáá:) Minn maður ! (þá meina eg hófýar) bwahaha en já málið er ká ell árlega bryggjuhátið! ekki eikkvað happy hátíð á hólmó.. það er bara prump! djok:)
á ég að segja brandara? okei.. tilbuinn? hahaha

stærðfræðikennarinn minn er alveg óútreiknanlegur!!! ahahahahah:D
high five!! :)
15. apríl 2007 klukkan 23:31
Hehe Berglind þú ert gúgú og gaga. bimmilimm og búmmbúmm :P
En já Bryggjuhátíðin er málið, líka bara Hómó City :D
15. apríl 2007 klukkan 23:37
Viltu heyra fleiri brandara? =D
17. apríl 2007 klukkan 13:59
Þórdís Adda
 
Hehe snildar helgi.. :) Næst verður það bryggjuhátíð.. Hefðum nú reyndar átta að hafa meiri bjór með okkur í að moka skít.. það verður gert næst.. hehe þú mætir..
17. apríl 2007 klukkan 17:26
Mér finnst að Ragnar Björn eigi að fara að blogga.. ;)
17. apríl 2007 klukkan 21:30
feita fjörið
 
Ég tek undir orð síðasta ræðumanns! Og ekki slæmur ræðumaður það!
17. apríl 2007 klukkan 21:55
ójá líst vel á það
18. apríl 2007 klukkan 19:32
hadda
 
hva er málið strákar ekkert að gerast hjá ykkur eða, verðið að gera ykkur grein fyrir að ég er heimavinnandi enþá : ) og verð að hafa eitthvað að lesa humm koma svo
19. apríl 2007 klukkan 20:13

Skrifa athugasemd