Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

ert u strákur eða stelpa eða hommi eða lessa

Jæja

14. október 2007 klukkan 16:42
Komiði sæl góðir hálsar eins og þið sjáið þá er bloggið búið að vera svo ört hjá okkur að ekki hefur alltaf tekist að kommenta inná milli, Þar sem partur af okkur er kominn með sigg á puttalingana á öllu þessu glamri á lyklaborðskvikindið. Þá höfum við ákveðið að halda út annari síðu sem sameinar áhugamálin okkar. Það er Kerlingar, brennivín og bílar. Þannig að þið getið kíkt inná www.4x4sykurpudar.bloggar.is og þar sjáiði hvað er að gerast og þar getiði líka spjallað


Kv Palli Kristó
Gráa kattar crewið
Engin athugasemd

Of seint vinir

06. september 2007 klukkan 15:52
Nú hefur verið lokað fyrir pantanir vegna Henson galla fyrir þjóðhátíð. Þið sem voruð ekki nógu snar í snúningum til að hafa samband við ástarhnoðrann verðið bara að bíta í þá súru gulrót að hafa orðið útundan.
En þökkum við Kettirnir kærlega fyrir þessa frábæru þáttöku sem átti sér stað sérstaklega vill ég ekki gera uppá milli en þeir báðir sem tóku þátt voru æðislegir!
Edrúsykurpúði
hahahahahahahahahahahahahahaha

Kveðja Feita fjörið
 
Gráa kattar crewið
6 athugasemdir

!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

26. júní 2007 klukkan 15:34
  • Nú er komið að því
    Þjóðhátíð nálgast óðum
    ein ölvaðasta helgi ársins
    og ég hvet þá sem ætla að vera með í Henson göllum, að setja sig í samband við Palla Kristó sykurpúða.
    Stk af gallanum kostar litlar 8500 kr en ef að það er stelpa í kjörþyngd þá fær hún stykkið á 7500 kr ef hún hrífur sykurpúðann uppúr skónum!

  •  

    Feita fjörið
Gráa kattar crewið
14 athugasemdir

Sjómannahelgardjamm

04. júní 2007 klukkan 00:55
Laugardagurinn var byrjaður snemma með því að

Farið var í Rvk á jet ski og til að fagna því að óli geir

væri að eldast . Megnið af gráum köttum fóru og svo

Óli og félagar. Steinar átti tilþrifaverðlaun dagsins ef ekki

ársins, Þegar hann flaug fram fyrir sig og fékk skíðið í hausinn.

Svo var haldið til Kef og skrapað af sér saltið og skellt sér í djammdressið og var það Árnason og Anna sem fengu það skemmtilega verkefni að koma mér og Unnarsyni Bjarna til Kef og fór víst remban eikkað smá dass í taugarnar á Önnu. Hehe



Svo var farið á Trix þar sem Óli hélt uppá afmælið sitt og var bollan blönduð með rassgati og spritt, enda fóru fáir edrú út. Kl 1 kom Páll Óskar og leysti mig af í dj-inu og þakka ég honum kærlega fyrir það.

Svo var haldið á vit ævintýranna í Vogunum í afmæli hjá Tinnu Guðrúni þar var allt flæðandi í bjór og var maður með gítar í fanginu þegar við komum og var ég farinn að halda að hann væri bara til skrauts, þannig að ég bað manninn vinsamlegast að berja kvikindið duglega og þá varð stemmingin alveg háspenna, lífshætta. Alveg þangað til að andrea fékk brjálæðiskast og sagði öllum að drulla sér útúr sínum herbúðum og þá var bara startað econoline (sukkmóbíl) í gang og Balli Killer sá um aksturinn, og ég er ekki frá því að sá maður sé bara snillingur hann er bara kæruleysið uppmálað.
Sukkmóbíl
Þannig að bílinn var bara fylltur að bjór og bensíni og rúllað af stað í saurlífið.

Svo kom ég með þá uppástungu að skella okkur í Njálsbúð fyrst við værum komnir með svona fínan fararskjóta en það var kæft í fæðingu, menn eru langt frá því að lifa í núinu.



Þannig að við fórum í Grindavík og var það langt frá því að vera að plumma sig. Ekkert fjör.
Allir vildu fara
Þessi mynd var akkurat tekin útí Festi eftir að menn áttuðu sig á því að það væri bíll á leið út úr Grindavík! hahhahaha

Þannig að maður endaði á Trix og eins og margir vita þá er nú bannað að reykja inná skemmtistöðum og má með sanni segja að svitafýlan hafi verið á mörkum heimsmets á dansgólfinu á Trix og ekki nóg með það heldur þá gerði eitthver sér lítið fyrir og kveikti á afturbrennaranum og gaus þá upp þvílíkur fnikur að öðru eins muna ekki einusinni elstu menn eftir.





Kv Feita Fjörið




Gráa kattar crewið
17 athugasemdir

Ferðir sumarsins

29. maí 2007 klukkan 00:47
  komiði sæl, ég biðst forláts á hvað menn eru búnir að vera slappir að blogga, nú erum við eiginlega komnir í smá sumarfrí og verður auglýst eitthvað af útileigum hérna í sumar og ég hvet sem flesta að koma með í það og ef þið eruð efins og forvitin um hvað verður um að ske í þessum útileigum. Þá getið þið farið í tengla og þar stendur ´myndirá ringo´, þar eru myndir frá ferðalagi helgarinnar og þar var mest lagt uppúr því að skoða og ferðast en kvöldin voru djamm dauðans enda landslið vitleysingja á ferðinni.

Kv Feita Fjörið
Gráa kattar crewið
4 athugasemdir

Nú fékk ég sparkið í rassgatið

20. apríl 2007 klukkan 21:22
Komiði sæl. Þið verðið að fyrirgefa okkur kattarkvikindin að við séum búnir að vera svona svakalega slappir í færslumálum, en þannig er mál með vexti að það er búið að vera brjálað að gera. En svo að ég rifji upp það sem hefur verið að gerast.

Þá eru páskarnir Nonni var búinn að segja sína sögu en það vantaði hvað hinir kettirnir gerðu, á Miðvikudeginum var fengið sér smá öl hjá ungum sjálfstæðum mönnum og það er alveg óútskýranlegt hvað bjórinn er alltaf rosalega góður ef maður þarf ekki að borga fyrir hann (sérstaklega ef hann er stolinn) sem hann var nú ekki í þessu tilviki. En þar hittum við fyrir Kjartan nokkurn Pretzel og það var skitið vel yfir hann og ef eitthverjir eru búnir að gleyma því þá er hann strákurinn sem Hrafnhildur murkaði líftóruna úr á nokkrum stöðum eitt gott Laugardagskvöld hér í bæ.
Svo var haldið yfir á Yello og þar voru Biggi Júlli og Skúli Kastljós og Skúli var að vinna í því að stöðva fjölgun íbúa í Reykjanesbæ með því að kýla menn í punginn við misgóðar undirtektir( sem kemur betur fram á eftir). Og á yello var helvíti mikið af liði, það vantaði samt smá lausleika í kvennfólkið. Ekkert nema kellingar á föstu út um allt. Kikti þá aðeins á Paddys og þar var móðurmálið orðið að Pólsku þannig að ég sagði bara kúrva mas og fór. svo þegar ég kem til baka þá eru skúli og Árni Árna búnir að vera að rífast eitthvað og allt í fáti, Skúli kýldi nefnilega í kvikindið á Árna sá ekki að hann þyrfti að nota hann og Árni gerði sér lítið fyrir og gaf Skúla bara bjór í staðinn!
Verst að Skúli fékk ekki að teiga heldur hellti Árni beint yfir kollvikin og vakti það miður litla kátínu hjá okkar Kastljós manni.

Fim var rólegur

Föstudagur var tekinn snemma voru menn vaknaðir um sólarupprás kl 8 og svo var skellt sér á Langjökul og þar slátraði ég litlum tveim kössum af bjór tæplega, Bjarna til mikils ama ég held að hann se´ennþá að þurrka tárin. Svo þegar heim var komið þá skelltum við okkur strax í kópavog city og fórum á ball með Pöpunum á Players og ég var alveg að fíla það að komast aðeins úr Kef til að rugla í nýju liði en ... helduru að það hafi ekki bara verið rútuferð frá Nafla alheimsins og það var allt krökkt af Suðurnesja liði þarna og tómt rugl.

Ég gat nú samt alveg dansað og djammað fyrir því hehe og talandi um að dansa og djamma, ég var víst að spjalla við gelluna sem söng þjóðhátíðarlegið í fyrra hún heitir Hrönn. Gaman að segja frá því. Svo þegar var búið að klappa hljómsveitina upp 18 sinnum þá var drullað sér út og uppí leigubíl og í Kef og þegar þangað var komið fórum við á Trix og þar fannst mér allir svo leiðinlegir og fullir að ég fékk mér bara einn fjórfakdann í sprite og þá náði ég þeim og stakk þá af og var þarmeð orðinn langleiðinlegastur á Suðvesturhorninu það sem eftir lifði nætur.

Að öðru leit voru kettirnir rólegir það sem eftri tórði páskanna nema Bjarni og Rggi en það telst víst ekki til tíðinda ef þeir eru fullir ferkar að það teljist til tíðinda þegar rennur af þeim.

Annars er núna hafinn mikill undirbúningur fyrir Þjóðhátíð! ekki seinna vænna að vera vel græjaður á svona fengitíð. Svo vil ég fá alla til að klappa vel fyrir Hrafnhildi sem ætlaði að starta svaka djammi í lóninu í gær en drapst un kvöldmat og svo þegar hún rannkaði við sér skildi enginn handa sinna skil. Og eru nú útsendara leyniþjónustunnar pottþéttir á því að þetta sé mikið dulmál og eru þeir í óða önn að þýða þetta alltsaman.

                                 Feita Fjörið
Gráa kattar crewið
15 athugasemdir

High five... Very nice!!!

12. apríl 2007 klukkan 23:03

Jæja víst að enginn nennir að blogga um páskana þá er bezt að ég geri það bara.. Við drengirnir vorum búnir að plana að fara norður á strandir í jeppaleiðangur á Drangajökul. En nei það fór allt í fokk og fengum við þær fréttir að það væri bara drullu færi og leiðindi, þannig að hætt var við jeppaleiðangurinn. Ég lét þetta samt ekki á mig fá og var harður á því að fara norður, því að þetta er hinn bezti staður til að dvelja á og sé ég ekki eftir því að hafa farið.. Ég og Andri G fórum saman á yaris befreið sem að Andri fékk að láni hjá foreldrum. Við lögðum snemma af stað úr Sunny Kef og þá búnir að verzla mat og smá mjöður :D Þannig að við rúlluðum bara beinustu leið norður með smá stopp í Brú þar sem að við brögðuðum á pítu með einhverju fjallagrasi sem að hefur væntalega verið ræktað í fjalshlíðinni fyrir ofan. Andri, kellingin sem hann er skóf allt grasið af sinni pítu en ég lét það ekkert á mig fá og át þetta bara með beztu lyst, eins og flestir vita þá ét ég nánast allt sem kemur nálægt mínum kjafti. En nóg með það, við héldum á vit ævintýrana á ströndunum og fórum við beint í mat í Odda í Bjarnafirðinum, þar sem að við fengum þetta líka þetta gómsæta kjöt. Svo var bara farið í að drekka mjöður og horft á Borat, þá fengu sumir á heilann þessa frægu setnigu hjá Borat, High five.. Very nice og var hún sko ekkert spöruð þessa helgi. Seinna um kveldið var farið í laugina að laugarhóli og drukkið meira mjöður og látið öllum illum látum.

Á föstudeginum var vaknað snemma og farið beinustu leið út í fjárhús að gefa kindunum :D bara gaman það, svo var fengið sér súpu og meðlæti í Odda. Eftir súpuna var farið aftur út í fjárhúsin og mokað skít, því að þessar blessuðu kindur eru allar fullar af skít. Voru vaskir menn af störfum þ.e.a.s. Arnþór, Steinar, Sölvi, Golli, Andri. En auðvitað þurftum við að hafa eitthvað að drekka með okkur og tókum við kassa af mjöðri með í för. Það var bullað nóg og vildi einhver að stytta nafnið mitt frá Jón Ingibjörn í Nonni IngiBjössi, en ég var kallaður það sem eftir var ferðar.  En nóg um skítinn, um kvöldið lá leiðin á Café Riis sem að er staðsett á Hólmavík. Þar var drukkið og dansað vilta dansa eitthvað fram á nótt, man ekki alveg hvenær það endaði, man samt að löggan skutlaði okkur.



Agalega fínir í skítagallanum..

 
En á laugardeginum vöknuðum við Andri hjá Berglindi vinkonu okkar um morguninn, lá Andra svo á að komast heim til Golla að hann var varla búinn að vakna þá var hann farinn út. En ég þessi rólegi gaur var bara í chillinu þarna, spilaði Guitar Hero með Guðbrandi bróður Berglindar. Svo var maður bara kallaður í mat og ekki slæ ég hendinni á móti fríum mat. Var þá afi Berglindar að snæða þegar að ég settist við matarborðið, fékk ég líka ekkert smá ill augu og hann sagði ekkert, þannig að ég braut ísinn og bauð honum góðann daginn :P hehe Svo var haldið inn á Hólmavík í Vínbúðina til þessa að bæta í kassann til þess að getað mokað meiri skít, sem og við gerðum seinna um daginn.. Laugardagskveldið, þá var hörku partý hjá Golla frænda og spiluðum við þar drykkjuspil sem vakti mikla kátinu hjá liðinu. Svo var haldið á ball inn á Hólmavík, nánar til tekið í Bragganum, þar lék hljómsveitin Bermuda fyrir dansi og var það alveg hreint hörku stuð, dansaðir viltir dansar aftur.

Sunnudagurinn var alveg hreint magnaður, því að þá vaknaði ég við hliðina á Hófý og var búinn að liggja það eins og skata, og viti menn þá var ég kallaður í páskamat fram í stofu, þar beið fjölskylda hennar spennt eftir því að ég léti sjá mig, og buðu uppá svínakjöt og lambahrygg. Mætti ég eins og illa skreytt jólatré á hlýrabolnum og hárið eins og loftnet upp í loftið, það er ekki á hverjum degi sem að maður fær svona góðan morgunmat og var ég mjög sáttur með hann. Eftir matinn var Hófý svo væn að skutla mér heim til Golla frænda á Drangsnes, þar var strax opnaður bjór og byrjað að leita af páskaegginu sem að ég og Andri keyptum. Vorum við í einn og hálfan tíma að finna það eftir endalausar vísbendingar, eftir að við fundum eggið þá var það eina sem að við gerðum við það var að taka fuglinn af egginu og lögðum það svo á borðið. Einnig var farið í Odda og leitað af eggjum, þar sem að þau voru dreifð úti, gekk það svona ágætlega. Eftir eggjatýnsluna fór Golli að sigla sleðanum sínum á ánni fyrir neðan Odda. Svo um kveldið var spilað Stjórinn, drukkið mjöður og rekið við af öllu kjötinu sem að við höfðum hámað í okkur. Farið var aftur í sund á Laugarhóli og komu þar rugludallar frá Hólmavík og létu öllum illum látum.


Golli að taka af stað...

En mándudagurinn var rólegur og við vorum ekkert að æsa okkur að leggja af stað heim. Fengum skonsur rétt fyrir brottför hjá Helgu móður hans Golla og var fínt að éta smá áður en haldið var suður. Yarisinn var alveg hreint stappaður á leiðinni heim, Berglind og Magnea lögðu líf sitt í hættu við það að koma með okkur á yaris befreið suður. Ég fékk þann heiður að aka áleiðis suður, gekk það alveg ekkert smá hægt en slysalaust, spóluðum upp ennishálsinn því að þar var byrjað að snjóa.

Þessi ferð var alveg hreint geggjuð í alla staði, bezta við hana að við sváfum aldrei á þeim stað sem að við áttum að sofa á :p  En jæja er farinn að setja hendur mínar í gifs vegna mikilla takkapikkinga. Hehe

               Nonni IngiBjössi kveður að sinni... High five.. Very nice!!

Myndbandið af Golla sigla á ánni : http://www.youtube.com/watch?v=_s6ulBhMCFA

Gráa kattar crewið
17 athugasemdir

allt og ekkert

01. apríl 2007 klukkan 03:34
Já jæja góða kvöldið eða daginn eftir kvenar sólahrings þetta er lesið ;)Það hefur nú lítið verið að ske hjá okkur köttunum en það vil svo skemmtilega til að þetta er að reynast ein af rólegri helgunum hjá okkur eða já svona svo sem. Ég reindar fór í gær föst 30 mars í fermingarafmæli í garðinum sem var mega svaka æðislegt stuð það sem ég man og var það bara rétt birjunin á kvöldinu hehehe. Og veit ég til þess að Jonny var peru fullur eitthverstaðar í ruglinu eins og vanalega. Á meðan Raggi fór í bíó og feita fjörið var uppí bústað að vinna voða duglegur og endaði blindfullur í eitthverjum bústað í nágreninu svaka duglegur starfsmaður og var svo að drepast úr þvínku allan laugardaginn hehehehe gott á þig. En svo er það bara vinna mán þrið og mið og já þá er komið páskafrí og er stefnan tekinn á Hólmavík uppúr hádegi á fimmt og já vá líst mér  heldur betur vel á það jeppast á daginn og öl á kveldin það er bara töff en ég nenni ekki að vera lengur vakandi edrú á laugardags nóttu svo ég bið að heilsa í bili og við hljótum að fara að gera eitthvað krassandi núna fljótlega sem hægt er að rita um hér en jams verið sæl að sinni
Gráa kattar crewið
12 athugasemdir

Er þetta ekki allt vændi?

21. mars 2007 klukkan 15:42

Halló halló ég ætla að vera málefnalegur í dag og aðeins að skrifa um það sem hefur verið í fréttum, en fyrst ætla ég aðeins að fara yfir mín mál síðustu daga.

Þannig er mál með vexti að ég var bara algjörlega fastur í bakinu á mánudaginn og þurfti þarmeð að finna mér eitthvað við þessu og mér var bent á Kínverskt nudd og ég ákvað að láta tilleiðast og skellti mér. Og ég skal nú bara segja ykkur það að aðrar eins pyntingarbúðir hef ég aldrei lent í!
Ég var farinn að hallast að því að ég hafi verið sendur sem fangi til Írak og þar væri verið að limlesta mig. Það var traðkað, hamrað og stungið.Alveg er ég viss um að þetta sé svipaður sársauki og að fæða barn x2  En ég verð samt að játa það að þegar maður fer að finna aftur fyrir bakinu þá finnur maður hellingsmun.

En víkjum nú að öðru, vinur minn talaði við mig um að skrifa um þetta fyrir sig því hann hafi ekki kúlur í það og ég sagði ekkert mál ég varpa þessu fram. Því mér finnst hann orða þetta svo skemmtilega og gaman að sjá karlrembuna í honum.
Þannig að nú skrifa ég þetta sem ég sé hann:  
Ég sá fyrirsögn í blaðinu í gær þar sem var sagt að nú væri búið að lögleiða vændi og hljómar það ágætlega bara, en ef maður fer að spá í því eru þá ekki allar konur vændiskonur, ég meina maður fer á djammið og fer að spjalla.
            Alltaf heimta þær drykki og maður á að borga allt,(aðgangseyrir inná staði, leigubíla og annað slíkt).Þannig að á Sunnudegi áttar maður sig á því að hafa eytt alltof miklu og geitin sem liggur uppí rúmi við hliðina á manni er engu myndarlegri en sextugi mjólkurbílstjórinn úr sveitinni sem er búinn að vera einbúi í 30 ár og hefur borðað yfir sig í 40. Þú gætir líka lent í því að binda ekki nógu góða slaufu á kvikindið og þarft að borga hinni sömu fögru og mögru mær dráttarvexti í 18 ár kannski meir.

 Tala nú ekki um þegar menn byrja í samböndum þá er peningurinn tekinn og djammið, og svo þegar halla tekur undan fæti þá hirða þær bílinn og húsið líka. Og þær hafa ekkert borgað! Kannski tekið til öðru hverju og séð um að panta pizzu 2 í viku!

                      Er þá ekki hreinlega skárra að getað borgað eitthverri fallegri píu smá slatta fyrir fjörið og þurfa ekkert að skammast sín daginn eftir eða að þurfa að skutla neinni heim! maður þekkir nú þetta vandræðilega móment þegar skutla þarf eitthverri stelpu heim sem þú hefur aldrei áður hitt en lentir víst ofan á henni um nóttina.                
                    Menn spyrja sig á ég að gefa henni five eða kyssa hana, á ég að segja bara bæ og  sparka henni út, Sumir kaupa miða í strætó fyrir þær en það ýtir víst undir að hún muni ekki hafa meira samband (Segja þeir sem þekkja til). 
En aftur á móti þá veit ég að vændi og dóp haldast oft í hendur þannig að það er það sem er ókosturinn við þetta alltsaman, því vona ég að löggan verði vel á varðbergi fyrir ´Pimpunum´.

Þetta er það sem vinur minn hafði að segja um þetta. Allsvakalega vona ég að þetta komi af stað keppnis umræðu um þetta.


                                                            Feita Fjörið

Gráa kattar crewið
19 athugasemdir

Skautasnillingar !!

19. mars 2007 klukkan 19:38
Jæja góða kveldið kæru lesendur. Þá er komið að því að blogga um þessa frábæru helgi.
Helgin byrjaði vel hjá Bje, því að hann var í svo góðu skapi á föstudaginn og skellti sér í bæinn og verzlaði eitt stykki Hilux . Kallinn loksins kominn á jeppa og við auðvitað ánægðir með drenginn Hlæjandi .
   Föstudagskveldinu var eytt í að rúnta á nýja jeppanum hans Ragga og tókum við rúnt með okkar ástsæla dreng, sem sumir vilja kalla einn frumkvöðul í íslenskri listskautasögu, það mun vera hann Páll Ullandi. Við tókum góðann rúnt um Reykjanesið og svo í Gr-indjána-vík.
   Ég og Páll vorum edrú á laugardagskveldið, enda var búið að ákveða að fara eitthvað á jeppunum  á sunnudagsmorgun og leggja af stað kl 09:00. En það sem að menn geta stundum ekki hagað sér í áfenginu þá var ekki lagt af stað úr Sunny Kef fyrr en um 12. Því að ekki gekk vel að vekja hann Bjarnleif sem að svaf svo fast að hann hefði bara snúið sér á hina hliðina ef að flugvél hefði lent inni í stofunni hans . En svo var haldið upp á Hellisheiðina í alveg hreint brjálað veður, skafrenningur og smá dass af vindi. Frostið var eitthvað um -9 gráður, en við létum það ekkert á okkur fá og óðum á einhvern slóða sem að Páll var æstur í að prufa. Þá byrjaði ævintýrið, Páll náði að bakka í einhvern skafl og festa sig, en það var nú góðu lagi því að við höfðum nú með okkur spotta og Raggi dróg hann. Svo vorum við að skiptast á að festa okkur, bara gaman það. 
     En eftir smá stund á hálendinu var farið að pressa alveg rosalega á okkur, því að við áttum að fara að keppa í listskautum við gullfallegu vinkonur okkar á 2plus2 síðunni. Þegar að við komum í bæinn aftur þá var hálftími í lokun, og stelpunar búnar að vera að æfa sig í 3-4 tíma.Ullandi En þegar að við komum á svellið þá var bara búið að slökkva ljósin og hafa þetta voðalega rómó með diskóljósum. En við vorum varla orðnir heitir þegar að það tíminn var búinn. Samt náði Páll að sýna okkur hversu megnugur hann er á skautum, og tók hann stelpurnar alveg hreint í gegn. Held að þær hafi náð að læra eitthvað af honum, og ég rétt vona að þær hafi verið að fylgjast vel með. Því þvílíka takta hefur ekki sést hér á landi áður, enda frumkvöðull í íslenskri listskautasögu. Við erum að tala um að hann byrjaði ungur að aldri og sá þá fólk hversu megnugur hann var, þá bara 12 ára. Þegar að hann var  13 ára fór hann í listskautaskóla í Rússlandi og lærði af þeim beztu.  En ég hugsa að við þurfum að fara aftur svo að Páll geti sýnt hvað hann getur, því að þær stóðu bara á svellinu og voru að taka myndir hehe.Ullandi Sumar voru með göngugrindina til þess að forðast að detta á rassinn .  Hehe .. Vonandi koma myndir sem fyrst frá þessari helgi frá drengjunum sem að voru með myndavélarnar í þessari ferð.
En jæja andskotinn hafi það, þetta er komið fínt í bili. Nú er bara að vita hvort að stúlkurnar þori aftur á svellið eftir þetta rúst hjá okkur í gær . hehehe   
                             Skautakveðja
                                                        Jón Ingibjörn
Gráa kattar crewið
15 athugasemdir